Verkir í mjaðmagrind

Mjaðmagrindarverkir (Pelvic Girdle Pain / PGP) Algengt ástand á meðgöngu og eftir fæðingu, en getur einnig komið fram hjá öðrum. Einkennin eru oft verkir aftan í mjaðmagrind, í nára eða rassvöðvum og geta versnað við göngu.

Symfysit (verkir í lífbeinssamskeytum) Verkir framan á mjaðmagrind við lífbein sem eru algengir á meðgöngu. Verkirnir geta aukist við göngu, að fara upp stiga eða snúa sér í rúmi.

Bólga í rassvöðvafestum (Gluteal tendinopathy) Verkir utan á mjöðm sem geta leitt niður læri. Algengt er að finna fyrir verkjum við göngu, hlaup, stigagöngu eða þegar legið er á hliðinni.

Klemmueinkenni í mjöðm (FAI) Ástand þar sem klemma myndast í mjaðmaliðnum við ákveðnar hreyfingar. Einkennin eru oft verkir í nára, stífleiki og óþægindi við djúpar beygjur, setu eða æfingar.