Hvað gerir Naprapat?
Naprapat sinnir mati, meðferð og endurhæfingu vegna verkja og hreyfivanda í stoð- og taugakerfi. Markmiðið er að draga úr verkjum, bæta hreyfigetu og styðja við daglega virkni og almenna líðan.
Við fyrstu komu förum við yfir heilsufar, einkenni og markmið og skoðum meðal annars hreyfigetu og mögulega áhrifaþætti. Út frá því er meðferðin sniðin að þínum þörfum.
Meðferð getur meðal annars falið í sér liðlosun, svo sem hnykkingar og drop technique, dry needling, nudd og triggerpunkta-meðferð. Fræðsla, æfingar, álagsstýring og endurhæfing eru einnig mikilvægir þættir meðferðarinnar. Val á meðferð byggist á einkennum, skoðun og markmiðum hvers og eins.
meðferðir hjá Naprapat
-
Snögg og nákvæm meðferð á liðum sem getur aukið hreyfanleika og dregið úr verkjum með áhrifum á taugakerfi og liði.
-
Árangursrík meðferð til að vinna með triggerpunkta þar sem lítilli nál er stungið inn í triggerpunktinn til að virkja hann, auka blóðflæði og lina verki.
-
Sérsniðnar æfingar fyrir endurhæfingu eða til að minnka verki og bæta virkni og hreyfanleika.
-
Graston er meðferð þar sem notuð eru sérhönnuð stálverkfæri til að vinna á vöðvum og bandvef. Meðferðin hjálpar til við að losa um stífleika, draga úr verkjum og bæta hreyfigetu með því að örva náttúrulegt bataferli líkamans.
-
Nudd losar um vöðvaspennu, bætir blóðflæði og dregur úr verkjum. Meðferðin getur einnig minnkað verkjaupplifun með því að örva taugakerfið (Gate Control Theory) og stuðla að slökun og betri líðan.
-
TENS og EMS eru raförvunarmeðferðir sem draga úr verkjum og örva vöðva. TENS er aðallega notað til verkjastillingar, á meðan EMS hjálpar til við að virkja og styrkja vöðva.
-
Kemur síðar
-
Kemur síðar