leifur guðjónsson
Naprapat / Dr of Naprapathy
Ég útskrifaðist sem naprapat árið 2026 og hef alla tíð haft mikinn áhuga á líkamsrækt, hreyfingu og því hvernig líkaminn starfar. Samhliða því hef ég lengi starfað sem fótboltaþjálfari, bæði á Íslandi og í Svíþjóð.
Samhliða námi og störfum hef ég aflað mér fjölbreyttrar þekkingar og réttinda á sviði heilsu og hreyfingar, meðal annars í dry needling, nuddi og einkaþjálfun.
Í mínu starfi legg ég mikla áherslu á að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og vinna út frá þörfum og markmiðum hvers og eins. Markmið mitt er að hjálpa fólki að bæta hreyfigetu og líðan og ná betri færni, hvort sem það er í daglegu lífi, líkamsrækt eða íþróttum.