Verkir í efri útlimum
Verkir í efri útlimum geta haft áhri á vinnu, íþróttaiðkun og daglegt líf. Vandamál í öxl, olnboga, úlnlið eða hendi geta komið fram vegna álags, meiðsla, endurtekinna hreyfinga eða langvarandi kyrrstöðu. Einkennin geta verið verkir, stífleiki, máttleysi, dofi, náladofi eða skert hreyfigeta.
Öxlin er einn hreyfanlegasti liður líkamans og því viðkvæm fyrir álagi og meiðslum.
Frozen Shoulder (frosin öxl) einkennist af verkjum og skertri hreyfigetu. Skiptist yfirleitt í 3 fasa. Frysti fasi (3 til 9 mánuðir): miklir verkir og hreyfiskerðing. Frosinn fasi (6 til 12 mánuðir): verkir minnka en hreyfigetan er áfram léleg. Afþýði fasi (12 mánuðir +): hreyfigeta eykst hægt og rólega. Segja má að liðpokinn í öxlinni fari frá því að vera vínber í rúsínu og aftur í vínber.
Klemmueinkenni í öxl eru meðal algengustu orsaka axlarverkja. Ástandið verður þegar sinar eða slímsekkur í öxlinni klemmist eða verða fyrir auknu álagi við ákveðnar hreyfingar.
Verkir við að lyfta handlegg út frá líkamanum eða yfir höfuð
Verkir við að teyja sig eftir eða lyfta þungum hlutum
Verkir þegar legið er á öxl
Skert hreyfigeta
Olnbogi
Verkir í olnboga eru algengir hjá einstaklingum sem vinna endurtekin handverk, við skrifborðsvinnu eða stunda íþróttir.
Tennisolnbogi veldur verkjum utanvert á olnboga og getur gert grip og lyftingar erfiðar.
Golfolnbogi veldur verkjum innanvert á olnboga og tengist oft álagi á sinar framhandleggs.
Önnur vandamál í olnboga geta valdið stífleika, verkjum og skertri getu til að framkvæma dagleg verkefni.
Úlnliður
Úlnliður og hönd verða fyrir miklu álagi í daglegu lífi. Langvarandi tölvuvinna, handverk eða íþróttir geta leitt til einkenna frá sinum, liðum eða taugum.
Algeng einkenni eru:
Verkir í úlnlið, hendi eða fingrum
Dofi og náladofi
Minnkaður gripstyrkur
Stirðleiki eða bólga
Einkennin geta meðal annars tengst sinavandamálum, taugaþrýstingi eða álagsmeiðslum sem hafa áhrif á starfsemi handarinnar.