Hálsrígur og stífleiki í hálsi
Stífleiki eða læsing í hálsi er algengt vandamál. Það lýsir sér oft þannig að erfiðara er að snúa höfðinu í aðra áttina en hina, án þess að miklir verkir séu til staðar.
Hálsrígur er svipað ástand, en einkennist af mun minni hreyfigetu í hálsi, oft í eina eða báðar áttir, ásamt auknum sársauka og óþægindum.
Verkir frá brjóski í hálsi geta stafað af útbungun eða brjósklosi. Helstu einkenni eru verkur sem leiðir út í handlegg, dofi eða náladofi í hendi. Einkenni geta aukist við hósta eða hnerra og fylgir oft skert hreyfigeta í hálsi.