Verkir í mjóbaki
Stífleiki eða læsingar í mjóbaki eru algeng vandamál bæði hjá þeim sem vinna við skrifborð og þeim sem sinna líkamlega erfiðri vinnu. Algeng einkenni eru þreyta, stífleiki og verkir í mjóbaki sem geta versnað við ákveðnar hreyfingar eða eftir langan dag.
Tak/þursabit er skyndilegur stífleiki eða læsing í mjóbaki sem kemur oft eftir rangt átak eða snögga hreyfingu. Ástandið einkennist af takmarkaðri hreyfigetu, stífleika og verkjum sem geta gert daglegar hreyfingar erfiðar.
Brjósklos í mjóbaki myndast þegar brjóskið í hryggnum bungar út eða rofnar og þrýstir á taugar. Helstu einkenni eru verkur sem leiðir niður í rass, læri eða fót, ásamt dofa, náladofa eða máttleysi í fæti. Verkir geta einnig aukist við hósta eða hnerra.