Verkir í brjóstbaki eða rifbeinum
Stífleiki eða læsing í brjóstbaki er algengt vandamál, sérstaklega hjá þeim sem sitja mikið eða vinna við tölvu. Einkennin geta verið stífleiki og þreyta í efra baki, takmörkuð hreyfigeta, verkir milli herðablaða og óþægindi við djúpa öndun.
Læsing í rifbeini getur valdið verk eða óþægindum við inn- og útöndun, hósta eða ákveðnar hreyfingar. Verkurinn er oft staðbundinn og getur verið stingandi eða skarpur.
Verkir frá brjóski í brjóstbaki geta stafað af útbungun eða álagi á brjósk. Einkennin lýsa sér oft sem leiðni eftir rifbeinunum og aukinn verkur við hósta eða hnerra, ásamt stífleika og skertri hreyfigetu.